Monday, October 09, 2006

Fröken viðutan

Ég var að versla í bakarí um daginn og var að fara að borga þá rankaði ég við mér með skólatöskuna í fanginu og var að gramsa í pennaveskinu. Kannski var sjálfið mitt stokkið aftur í tímann og ætlaði að hafa fram vöruskipti á samloku og skrúfblýanti.
Ég hló auðvitað þegar ég fattaði þetta en afgreiðslustelpunni stökk ekki bros á vör, fannst ég ekkert skondin.

Wednesday, October 04, 2006

Redding

Fór út á lífið fyrir um 2 vikum nema hvað ég var með svo mikla rót í hárinu og hafði ekki haft neinn tíma til þessa að láta ömma lita mig. Svo var ég að mála mig og fannst ég bara orðin fín en rótin bókstaflega æpti á mig, sá hreinleg ekki annað!!!
Ég ákvað að taka málin í mína hendur og maskaraði rótina, það tókst bara með ágætum :)